Vel heppnuð vorferð.

29.05.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vorferð 10. bekkjar gekk vel, farið var að Steinsstöðum í Skagafirði og allt gekk eftir áætlun. Lagt var af stað kl. ellefu og komið á áfangastað um kl. 19. Þegar allir voru búnir að finna sitt herbergi og koma sér fyrir í þessari fyrrverandi heimavist, fóru flestir í sund í lauginni á Steinsstöðum fram að kvöldmat og síðan var hlaupið út um víðan völl við fuglasöng í sumarblíðunni, farið í fótbolta eða heilsað upp á hrossin í nágrenninu.


Daginn eftir var farið í flúðasiglingu á Vestari Jökulsá þar sem leiðin liggur um fallegt gljúfur. Allir voru í þurrbúningum að þessu sinni og að sjálfsögðu farið eftir ströngustu öryggiskröfum. Mikið vatn var í ánni svo ekki var hægt að stinga sér af klettinum fræga en í þess stað gerðu stjórnendurnir ýmsar aðrar kúnstir og sáu til þess að eitthvert fútt væri í siglingunni.


Að flúðasiglingu lokinni var haldið að Steinsstöðum í hádegismat og síðan í heimsókn í Samgöngusafnið að Stóragerði sem skartar ótrúlegum fjölda gamalla bíla sem hafa verið fallega gerðir upp auk margra sem bíða yfirhalningar. Síðan fór mannskapurinn í sund í hinni frægu sundlaug á Hofsósi og loks í pizzuveislu á Sauðárkróki. Þegar heim kom skelltu menn sér út í leiki í skagfisku blíðunni fram eftir kvöldi.


Daginn eftir var byrjað á klettaklifri. Ekið var út á Hegranes þar sem björgunarsveitarmenn biðu með sigbúnað og tilheyrandi og þar fengu menn að prófa að láta sig síga í klettana. Skipta þurfti hópnum í tvennt og þeir sem ekki voru að síga í klettana fóru og kynntu sér vöruúrval í Kaupfélagi Skagfirðinga á meðan. Að klettaklifrinu loknu var haldið heim á Steinsstaði í hádegismat og síðan hófst hápunktur ferðarinnar að margra mati, sem var litbolti. Þar skemmtu börnin sér drjúga stund við að freta hvert á annað á meðan fullorðna fólkið fylgdist með úr öruggri fjarlægð. Eftir litboltann var haldið í sundferð í Varmahlíð og síðan heim í grillveislu á Steinsstöðum. Um kvöldið var gerð tilraun til að halda kvöldvöku en blíðviðrið úti (ásamt félagsskap nemenda úr tveimur öðrum skólum) var greinilega meira freistandi svo kvöldvakan var fremur stutt og flautað var til fótboltakeppni milli Ísfirðinga og Akureyringa. Ísfirðingar sigruðu með glæsibrag en vilja helst ekki ræða þá staðreynd að þeir voru helmingi fleiri á vellinum. 


Um morguninn beið svo það skemmtilega verk að pakka saman og skila herbergjunum í boðlegu ástandi. Það hafðist allt saman og allir komnir út í rútu upp úr kl. 10. Áður en hægt var að halda heimleiðis þurftum við að mæta á stefnumót í Varmahlíð til að skipta á skóm sem höfðu ruglast hjá nemendum okkar og nemendum frá Egilsstöðum. Það eru nefnilega ansi margir aðrir skólar á ferðinni í svipuðum erindum í Skagafirði á þessum árstíma. Að því máli leystu ókum við af stað heim og vorum komin um kl. 18 eins og áður segir. Allir svolítið þreyttir, sumir svolítið skrámaðir en vonandi allir glaðir og ánægðir með ferðina og fullt af skemmtilegum minningum í farangrinum.