Vel heppnuð skautaferð hjá 6. bekk

23.01.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í dag fór 6. bekkur í skautaferð inn á gervigrasvöllinn á Torfnesi, sem er ísi lagður. Aðstæður voru allar hinar bestu og nutu krakkarnir útiverunnar og sýndu margir góða takta á skautunum. 


Ekki voru til skautar fyrir alla, en krakkarnir skiptust á og allir fengu að spreyta sig. S kólinn á nú nokkur pör af skautum og þiggur með þökkum fleiri slík af öllum stærðum, ef einhverjir eiga á lausu. Það væri mjög gott að eiga alla vega fyrir eina bekkjardeild svo hægt sé að skella sér á skauta með skömmum fyrirvara.


Fleiri myndir frá þessari vel heppnuðu skautaferð eru inni á myndasíðu 6. bekkjar.