Vel heppnuð skautaferð
23.01.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í dag skelltum við okkur á skauta á gervigrasvellinum á Torfnesi, sem er ísi lagður. Aðstæður voru allar hinar bestu og prófuðu allir nemendur árgangsins að stíga á skauta, sumir jafnvel í fyrsta skiptið. Krakkarnir voru alsælir eftir þessa ferð eins og sjá má á myndunum inni á myndasíðunni.
Skólinn á nú þegar nokkur pör af skautum, en þiggur með þökkum fleiri pör ef einhverjir eiga í geymslunni.








