Vel heppnuð ferð til Portúgals
18.03.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Portúgalsferðin gekk mjög vel, allt skv. áætlun. Dagskrá heimsóknarinnar var mjög þétt og löng, svo að iðulega var farið að sofa eftir miðnætti og á fætur kl. 7. Fyrsta daginn var farið á karnival í bænum Nazaré og var gaman að sjá hvernig Portúgalir halda upp á föstuinnganginn. Næsta dag var farið í bæ sem heitir Fatima og er að mestu byggður í kringum sögu af kraftaverki þar sem börn sáu Maríu mey birtast sér úti í haga. Þar voru aðallega skoðaðar kirkjur og fleiri helgir staðir. Síðustu tveir dagarnir voru svo nýttir til að heimsækja skólann í Leiria og var það mjög fróðlegt og skemmtilegt. Við fengum örstutta skoðunarferð í Lissabon á heimleiðinni, rétt nógu langa til að vita að þangað þarf maður að koma aftur í betra tómi.
Nemendurnir voru til mikils sóma og vöktu alls staðar athygli fyrir fallega og skemmtilega framkomu, svo að allir þeirra aðstandendur geta verið stoltir af.
Það var fremur fámennt í 10. bekk dagana sem hópurinn var í Portúgal, því að ýmislegt fleira var á döfinni hjá nemendum, auk þess sem þriðjudagurinn var starfsdagur skv. hefð. Á föstudeginum var t.d. Samféshátíð haldin í Reykjavík en þá voru aðeins 7 nemendur í árganginum í skólanum og höfðu það náðugt og horfðu á bíómynd.








