Vel heppnaður fyrirlestur með Hugo Þórissyni

01.02.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Forelrafélög grunnskólanna á Vestfjörðum stóðu í gærkvöldi fyrir vel heppnuðum fyrirlestri með Hugo Þórissyni sálfræðingi.  Um 120 foreldrar frá Ísafirði, Bolungarvík, Súðavík, Suðureyri, Flateyri og Þingeyri mættu og hlýddu á áhugaverðan fyrirlestur Hugos.  Þetta er í fyrsta sinn sem foreldrafélögin hér á norðanverðum Vestjfjörðum taka svona höndum saman og erum við í stjórn Foreldrafélags GÍ er mjög ánægð með samstarfið og vonum að áframhald verði á slíku samstarfi í framtíðinni. Meðfylgjandi myndir tók Halldór Sveinbjörnsson.