Vel heppnað þorrablót
27.01.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Einn af stærstu viðburðum félagslífsins í 10. bekk, þorrablótið, var haldið á sjálfan bóndadaginn, 24. janúar og var fjölmennt. Blótið hófst með borðhaldi og skemmtiatriðum en síðan dunaði dansinn fram eftir kvöldi. Kristján Andri Guðjónsson stjórnaði veislunni af röggsemi og sagði gamansögur á milli atriða. Kennarar sungu brag um nemendur, farið var í leiki og sýnt var myndband sem nokkrir feður höfðu útbúið af mikilli list. Gerði það mikla lukku og þurfti að sýna það tvisvar. Beata Joó lék undir fjöldasöng og Ingunn Ósk Sturludóttir var forsöngvari ásamt Kristjáni Andra. Eins og sjá má á myndunum á myndasíðu 10. bekkjar, skemmtu allir sér hið besta.








