Vel heppnað jólaföndur
17.12.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Á dögunum stóð Foreldrafélag Grunnskólans á Ísafirði fyrir jólaföndri í sal skólans. Mjög góð mæting var á föndrið en hátt í 200 börn, foreldrar og ættingjar mættu og föndruðu saman, drukku kakó og borðuðu piparkökur. Meðfylgjandi myndir voru teknar í jólaföndrinu.








