Vangaveltur um heimanám
12.04.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Rannsóknir sýna að þáttaka foreldra í skólastarfi hefur jákvæð áhrif á framfarir og líðan nemenda í skólanum.
Sá þáttur samstarfs sem hefur hve mest jákvæð áhrif á námsárangur samkvæmt rannsóknum er eftirfylgni og stuðningur foreldra við heimanám.
Það er því mikilvægt að foreldrar aðstoði börn sín við skipulagningu heimanáms og sýni inntaki námsins áhuga.
Rannsóknir sýna einnig að þeir nemendur sem sinna heimanámi á markvissan hátt standa sig betur í skóla en þeir sem sinna því illa.
Hlutverk forráðamanna:
- Að skapa styðjandi námsumhverfi
- Að skapa ramma um heimanámið
- Að taka þátt í vangaveltum, setja sig inn í efnið og sýna því áhuga
- Styðja nemendur í að finna lausnir á vanda sem skapast við framkvæmd heimanáms.
Þetta er tekið úr bæklingi frá Heimili og skóla "Heimanám-barnið þarf á stuðningi þínum að halda"
Skipulagðir og áhugasamir nemendur ná betri árangri








