Útivistadagur

15.02.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Þriðjudaginn 19. Febrúar er stefnt að því að vera með útivistardag hjá 5.-7.bekk. Foreldrum á að hafa borist tölvupóstur frá skólastjóra um skipulag dagsins. Set samt afrit af bréfi skólastjóra hér fyrir neðan svo upplýsingarnar séu sem aðgengilegastar.


 


Ágætu foreldrar og forráðamenn


Stefnt er að útivistardegi í Tungudal  þriðjudaginn 19. febrúar  fyrir nemendur í 5.-10. bekk. Gert er ráð fyrir að nemendur verði á skíðasvæðinu frá  kl. 10:00-13:30. 


Við förum þess á leit við ykkur, ágætu foreldrar/forráðamenn, að þið keyrið börnin ykkar á skíðasvæðið og sækið þau aftur.  Við vitum að ekki eiga allir foreldrar auðvelt með að keyra börnin sín og því bjóðum við upp á eina ferð fyrir nemendur sem ekki eiga annarra kosta völ.  Ferð frá skóla verður kl. 9:45og  frá skíðasvæðinu kl 13:40.


Á skíðasvæðinu er hægt að leigja skíði og kostar það um 2000 kr.  Þeir nemendur sem ekki fara á skíði geta haft með sér sleða og þotur.


Ekkert gjald verður tekið í lyfturnar og verða lyftur opnar áfram eftir 13:30  og geta nemendur verið lengur ef þeir óska þess. Mötuneytið mun sjá um hádegishressingu fyrir þá nemendur sem eru í áskrift í mötuneytinu.  Aðrir þurfa að koma með nesti að heiman.


 


Nemendur eru hvattir til að koma með hjálma og þeir nemendur sem ekki eiga hjálma geta fengið þá lánaða á staðnum (það má nota reiðhjólahjálma).


Þeir nemendur sem eiga lyftukort eru beðnir að hafa þau með sér.


Foreldrar eru alltaf velkomnir með í útivistarferðir skólans og skíðandi foreldrar vel þegnir.


Með kærri þökk fyrir aðstoðina


Sveinfríður Olga Veturliðadóttir, skólastjóri