Útivist og upplestur
09.03.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Útivistardagurinn var mjög góður hjá okkur. Þeir sem komu í Tungudalinn stóðu sig vel og voru að allan tímann sem lyfturnar voru opnar. Vonandi hafa allir komið sælir og þreyttir heim.
Við höldum áfram með upplesturinn. Á föstudaginn kemur verður skólakeppnin og þar verða 5-6 nemendur valdir til að lesa upp í Hömrum föstudagskvöldið 23. mars. Þar verða líka nemendur frá nágrannaskólunum.
Hlíf








