Úrslit dagsins í Stóru upplestrarkeppninni

20.02.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í morgun fór fram fyrri undanúrslitakeppni Stóru upplestrarkeppninnar. Allir nemendur 7. bekkjar lásu sögubrot og ljóð fyrir dómara. 10 nemendur voru valdir úr hvorum bekk til áframhaldandi þátttöku.


Þeir sem komust áfram úr 7.AY eru þau: Árný, Daníel, Emil, Hanna Þórey, Hafsteinn, Lára, Magni Jóhannes, Margrét Inga, Rakel María og Sigríður.


Þeir sem komust áfram úr 7.HS eru þau: Ellen Ósk, Guðbjörg Ásta, Hildur Karen, Hlynur Ingi, Ingibjörg Magna, Jakob, Kolfinna Íris, Lísbet Katla, Þórður Gunnar og Þráinn Ágúst.


Við óskum þessum krökkum innilega til hamingju og vonum að þeir haldi áfram að æfa sig fyrir næsta upplestur sem verður n.k. fimmtudag.


Við óskum öllum hinum einnig til hamingju með góða frammistöðu og árangur. Það hefur verið virkilega gaman að fylgjast með þessum krökkum og þeim gífurlegu framförum sem orðið hafa á síðustu vikum. Það þarf mikinn kjark og þor til að standa fyrir framan heilan bekk og flytja sögubrot og ljóð eftir kúnstarinnar reglum. Krakkarnir hafa allir staðið það af sér og erum við virkilega stoltar af frammistöðu allra. Þessi þjálfun skilar sér svo sannarlega og verður aldrei af þeim tekin.