Upplýsingatækni
24.08.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Kennari: Helga S. Snorradóttir
Kennslutilhögun: 5. og 6. bekk er kennt saman í hringekju í 6 (3x2) tíma á viku, 7 vikur hver hópur. Hóparnir samanstanda af 10 – 11 nemendum og er kennt í tölvuveri skólans. Auk þess verður reynt eins og kostur er að flétta upplýsingatækni inn í hinar ýmsu námsgreinar. Áhersla er lögð á að nemendur geti rætt og kynnt verkefni sín fyrir hópfélögum.
Markmið: Að nemendur geti:
Vinnulag og vinnubrögð
|
Upplýsingaöflun og úrvinnsla
|
Sköpun og miðlun
|
Tækni og búnaður
|
|
Viðfangsefni |
Vika 1
|
Ný lykilorð og meðferð þeirra. Nemendur gera möppur fyrir verkefni og myndir Fingrasetning http://www.sense-lang.org/typing/tutor/IS_tutorial.php Skanni Ljósritunarvél |
Vika 2
|
Glærukynningar í Power Point. Nemendur ákveða viðfangsefni, fara út og taka myndir sem þeir nýta í kynninguna. Skólasafn/upplýsingaver ásamt leitarvélum á Netinu nýtt til upplýsinga- og heimildaöflunar á gagnrýnin hátt. |
Vika 3
|
Myndvinnsla – iPhoto (MacOS umhverfi og/eða iPad). Reynt að samþætta við aðrar námsgreinar. |
Vika 4
|
Myndbandavinnsla – iMovie (MacOS umhverfi og/eða iPad). Reynt að samþætta við aðrar námsgreinar. |
Vika 5
|
Ritvinnsla og töflureiknir – Nemendur nýta sér Microsoft Word og Excel til framsetningar á efni. Reynt að samþætta við aðrar námsgreinar, t.d. stæ. og íslensku. Fingrasetning. |
Vika 6
|
Forritun – nemendur kynnast Alice forritunarumhverfinu sem kennir grundvallaratriði í forritun á skemmtilegan og einfaldan hátt. Alice býður upp á þann möguleika að búa til sína eigin sögu, myndband eða leiki í þrívíddarheimi. Heimasíða Alice: www.alice.org |
Vika 7
|
Forritun - áfram |
Námsmat: Virðing, samhugur, menntun og ábyrgð verða metin til einkunnar.








