Upplýsingar fyrir foreldra
16.08.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Upplýsingar til foreldra vegna skólabúða í Reykjaskóla
Mæting við Grunnskólann á Ísafirði mánudaginn 26. ágúst kl. 7:45 og brottför kl. 8:00. Nemendur eiga að hafa með sér nesti til ferðarinnar sem borðað verður á leiðinni. Á heimleiðinni verður nemendum boðið upp á hressingu á Hólmavík.
GSM símar eru ekki leyfðir meðal nemenda í skólabúðunum og er mjög mikilvægt að virða þá reglu. Ekki er heldur leyfilegt að hafa með sér sælgæti, snakk og gos.
Ef nemandi hefur með sér myndavél, geislaspilara, ipod, eða þ.h. tæki, ber hann sjálfur ábyrgð á þeim sem og öðrum búnaði. Nemendur eiga ekki að hafa peninga meðferðis, enda engin þörf á.
Dæmi um útbúnað nemenda – sem skal vera vel merktur:
Sæng, koddi og sængurföt eða svefnpoki |
Vaðstígvél (ef til eru) |
Nóg af nærfötum og sokkum |
Íþróttafatnaður |
Sundföt og handklæði |
Inniskór |
Strigaskór |
Hlý peysa |
Ritföng |
Tannbursti, tannkrem og snyrtidót |
Náttföt |
Myndavél (ef til er) |
Regnföt (vind-regnheld) |
Auka föt |
Vasaljós + aukarafhlöður |
Vinsamlegast komið upplýsingum sem allra fyrst til bekkjakennara um lyfjanotkun, óþol, ofnæmi eða annað sem máli skiptir. Ef um lyf er að ræða munu kennarar geyma þau og sjá um lyfjagjöf.
Heimkoma er áætluð seinni hluta föstudagsins 30. ágúst. Upplýsingum um nánari tímasetningu verður komið á heimasíðu skólans http://www.grisa.isafjordur.is
Ef að foreldrar þurfa nauðsynlega að ná í börnin sín er hægt að hringja á kennarastofu Reykjaskóla í síma 451-0008 eða í gsm. síma kennara. Það eru tilmæli frá skólastjóra Reykjaskóla að takmarka símtöl eins og kostur er þar sem það hefur sýnt sig að slíkt veldur stundum heimþrá hjá nemendum.
Allar nánari upplýsingar varðandi skólabúðirnar má finna á heimasíðunni http://www.skolabudir.is
Auður Yngvadóttir gsm. 893-5478
Helga S. Snorradóttir gsm. 663-0620








