Upplestur
06.01.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í þessari viku höfum við verið að æfa upplestur og undirbúa Stóru upplestrarkeppnina. Næstu vikurnar fá þau reglulega efni heim til að æfa sig á og er mikilvægt að foreldrar hlusti á börnin og veiti þeim stuðning. Allir nemendur taka þátt í þessu verkefni.








