Undirbúningur fyrir þorrablót
16.01.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Það styttist í þorrablótið sem haldið verður 24. janúar. Krakkarnir hafa nú fengið skráningarblað þar sem þau eiga að skrá hve margir gestir komi með þeim á blótið og þau þurfa að skila því sem fyrst, ekki seinna en á miðvikudaginn í næstu viku.
Í skólanum er verið að æfa gömlu dansana á fullu og gengur alveg ljómandi vel. Eva danskennari býður foreldrum líka upp á dansnámskeið í tvö skipti fyrir 1.000 kr. á parið í hvort sinn og renna þeir peningar óskiptir í ferðasjóð 10. bekkjar.
Við erum líka að æfa fjöldasöng fyrir blótið í íslenskutímum svo allir ættu að geta tekið hressilega undir.
Við tókum nokkrar myndir af dansæfingunni í dag en það var svo mikið fjör að þær voru nánast allar hreyfðar. :)








