Umhverfismennt
25.11.2011 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Þessa vikuna höfum við verið að kynna okkur Islamska trú. Lokaverkefnið úr þeirri vinnu verður í næstu viku.
Í morgun fóru fulltrúar bekkjanna á fund með nýstofnaðri umhverfisnefnd skólans. Er þetta hluti af verkefninu Skóli á grænni grein sem grunnskólinn tekur þátt í. Markmiðið með verkefninu er að auka umhverfismennt og umhverfisvitund starfsmanna og nemenda skólans. Þegar skólinn hefur uppfyllt ákveðnar kröfur fær hann leyfi til að flagga Grænfánanum. Hér er að finna nánari upplýsingar um verkefnið: http://www.landvernd.is/graenfaninn/default.asp








