Umburðarlyndi og víðsýni

11.01.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Þessa vikuna höfum við verið með próf og kannanir og höldum því áfram næstu viku sem verður síðasta vika haustannarinnar.


Við byrjuðum á nýju námsefni í samfélagsfræði um helstu trúarbrögð heimsins og krökkunum finnst það forvitnilegt, sérstaklega siðir og venjur í öðrum trúarbrögðum en kristni. Við teljum það auka víðsýni og umburðarlyndi krakkana að sjá hve mannlífið er fjölbreytt og margt öðruvísi en hjá okkur. Það ætti að geta hjálpað okkur í daglegu lífi og umgengni hvert við annað.