Tungumálaforði

23.04.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í viku móðurmálsins, 21. – 28. febrúar 2014, var efnt til samvinnu við skóla um skráningu á tungumálaforða sínum á Tungumálatorginu. Í ljós kom að heildarfjöldi tungumála í íslenskum skólum er yfir 90 og í þeim skólum sem skráðu upplýsingar eru töluð frá 1 upp í 36 tungumál.


Allir skólar sem sendu inn upplýsingar um tungumálaforða sinn fengu send rafræn viðurkenningarskjöl. 7.HS tók þátt í þessari skráningu og hér má sjá viðurkenningarskjal bekkjarins.