Tónlistarskóli og körfubolti

01.02.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Samstarfsverkefnið við Tónlistaksólann um kynningu á blásturshljóðfærum fer vel af stað og krakkarnir eru ánægðir. Allir eru búnir að fara tvisvar sinnum og passa vel upp á tímann sinn.


Í vikunni kom Eva Margrét, íþróttamaður ársins, ásamt fleirum í heimsókn til okkar og kynnti körfubolta. Krökkunum var boðið á körfuboltaleik í kvöld og að koma á körfuboltaæfingar í tvær vikur sér að kostnaðarlausu.