Tónlist og lús
18.01.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í dag var sett í tösku allra nemenda dreifibréf um lúsina og eru foreldrar beðnir um að kemba börnum sínum og senda þau svo í skólann með undirskrift þess efnis.
Eins og mörgum er kunnugt um fengu Grunnskólinn á Ísafirði og Tónlistarskóli Ísafjarðar sameiginlegan styrk úr samfélagssjóði Orkubús Vestfjarða til að efla tónlistarkennslu.
Ákveðið hefur verið að nýta styrkinn til að bjóða nemendum 5. bekkjar í sérstakt tónlistarverkefni. Öllum nemendum 5. bekkjar mun bjóðast að læra á blásturshljóðfæri núna á vorönninni, foreldrum að kostnaðarlausu. Krakkarnir munu fara í hópum, tvisvar í viku, í Tónlistarskólann og njóta þar kennslu hjá Madis Maeekalle í tuttugu mínútur í senn. Þetta verður gert á skólatíma. Þetta er ekki skylda en gaman væri að allir vildu í það minnsta vera með í byrjun og nýta þetta tækifæri til að prófa. Það verður þó enginn neyddur til að vera með. Okkur langar til að byrja núna í lok janúar. Þeir sem halda áfram út allan veturinn fá svo að spila með á lúðrasveitartónleikunum í maí.
Verkefni af svipuðu tagi hafa verið í gangi hjá okkur áður og mælst vel fyrir.








