Tónleikar og Stóra Upplestrarkeppnin
02.03.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Á þriðjudaginn var fyrsta umferð í Stóru upplestrarkeppninni. Voru þar nemendur úr báðnum bekkjum valdir til að halda áfram í keppninni. Önnur umferð verður svo þriðjudaginn 5. mars.
Á miðvikudeginum var okkur boðið á tónleika í Hömrum þar sem fiðleikarinn Laufey Sigurðardóttir og gítarleikarinn Páll Eyjólfsson léku m.a. fyrir okkur tónlist eftir Vivaldi. Voru nemendurnir prúðir og stilltir á meðan tónleikunum stóð og sáu tónlistarmennirnir ástæðu til að hrósa þeim fyrir að vera svona flottir áheyrendur.








