Tölvuval

10.09.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

 


Kennsluáætlun í upplýsingatækni/tölvuvali
8. bekkur veturinn 2012-2013
 


 


Kennarar: Laufey Eyþórsdóttir og Helga S. Snorradóttir


Kennslustundir: 2 kennslustundir á viku hálfan veturinn


Námsefni: Útbúið af kennara


Markmið: Að nemendur:



  • Fái þjálfun í að nota rétta fingrasetningu á tölvu með blindskrift og kunni á alla sérlykla á lyklaborði.



  • Dýpki þekkingu sína á ritvinnslu-, töflureikni-, glærugerðar-, umbrots- og myndvinnsluforritum.

  • Geti nýtt sér ritvinnsluforrit til að setja upp ritgerðir með forsíðu, efnisyfirliti, meginefni og heimildaskrá.

  • Geti sett myndir, gröf og töflur inn í texta.

  • Skilji þýðingu höfundarréttar og þekki inntak laga um höfundarrétt og persónuupplýsingar.

  • Fái tækifæri til að íhuga og ræða áhrif ærumeiðinga á Netinu, þær hættur sem fylgja nafnlausum samskiptum á Netheimi (m.a. á spjallrásum).

  • Hafi haldgóða þekkingu á upplýsingaveitum og gagnagrunnum á Netinu (t.d. hvar.is og google.com).

  • Geti gert útdrátt úr texta á Neti.

  • Dýpki þekkingu sína á notkun myndlesara (skanna), stafrænna myndavéla og stafrænna myndatökuvéla.

  • Kynnist notkun Flash hreyfimyndaforrita.

  • Geti útbúið hreyfimynd og stuttmynd og brennt þær á DVD-disk.


Námsmat: Skilaverkefni annarinnar ásamt ástundun, vinnusemi og umgengni við allar vélar metið til einkunnar.


 




















































































































Vika



Viðfangsefni:



Annað:



22.-24. ágúst


22. skólasetning



Enginn tími þessa viku.



 



27.-31. ágúst



Fjallganga



 



3.-7. sept.        7. starfsdagur (kennaraþing)



Nemendur koma með hugmyndir að námsefni fyrir önnina og rifja upp frá síðasta vetri. Skilaverkefni og áætlun annarinnar kynnt. Kynna Scratch og athuga hvort þau hafi áhuga á því



 



10.-14. sept.



Glærugerðarverkefni í PowerPoint.



Skilaverkefni



17.-21. sept.


 



Upplýsingaveitur á Netinu skoðaðar og farið yfir samskipti í netheimum.
Uppsetning ritgerða, höfundarréttur, heimildir og sérlyklar. Vistað sem pdf. skjal.



 


 



24.-28. sept.



Verkefni klárað frá fyrri viku.



Skilaverkefni



1.-5. okt.



Verkefni í Excel. Gröf flutt inn í textaskjal.



 


 



8.-12. okt



Bæklingur í Publisher.



 



15.-19. okt



Bæklingur í Publisher kláraður og vistaður sem pdf skjal.



Skilaverkefni



22.-26. okt     26. starfsdagur



Gerður borði (banner) með hreyfimyndaforriti



 



29.okt.-2. nóv    29. vetrarfrí,         1. og 2. þemad



Gerður borði (banner) með hreyfimyndaforriti. Vistaður á YouTube.



 


 



5.-9. nóv



Teknar myndir á stafræna myndavél og fluttar inn í tölvu. Myndvinnsla með Picasa.



 



12.-16. nóv    14. foreldraviðt



Myndvinnsla með Picasa. Upprifjun á skönnun mynda.



 



19.-23. nóv.



Myndvinnsla með Photo shop Elements



 



26.-30. nóv.



Myndvinnsla með Photo shop Elements



 


 



3.-7. des



Myndvinnsla með Photo shop Elements



Skilaverkefni



10.-14.des.



Stafrænar ljósmyndir settar saman með MovieMaker.



 



17.-20.des.



Stafrænar ljósmyndir settar saman með MovieMaker.



 



3.- 4 .jan               3. starfsdagur



Nemendur ákveða efni til upptöku á myndbandstökuvél, taka upp  og flytja inn í tölvu.



 



7.-11.jan



Að fullvinna stuttmynd með MovieMaker – nota myndefni frá vikunni á undan



 



14.-18.jan



Að fullvinna stuttmynd með MovieMaker – nota myndefni frá vikunni á undan



Skilaverkefni