Töfraheimsókn
30.04.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í morgun fengum við töframanninn Einar í heimsókn og Viktoríu aðstoðarkonu hans. Allir voru spenntir að að sjá hvað svona töframaður gæti töfrað og það var nú alveg heilmikið. Hann var flínkur með pening, spil, bolta og að lokum flaug hjá honum borð. Þetta var mjög góð skemmtun og mikið klappað.








