Tilraunir í náttúrurfræði.

25.10.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í gær vorum við í 4. bekk  að læra um vindinn og hvernig hann verður til. Í kennslubókinni stóð að vindur væri loft á hreyfingu og spurning sem við vorum að velta fyrir okkur  var af hverju hreyfist loftið? . Ég  kom með tvær fötur, í annari var klaka vatn og í hinni var sjóðheitt vatn. Ég  setti síðan blöðru á plastflösku og  við ræddum um hvað væri inni í flöskunni. Auðvitað vissu krakkarir að hún var ekki tóm, það væri sko  loft inni í henni (klárir krakkarSmile).  Við  settum síðan flöskuna í heita vatnið og þá blés blaðran út og þegar við stungum flöskunni í kalda vatnið fór loftið úr blöðrunni.  Þarna sáum við hvernig heitt loft þarf meira pláss heldur en kalt loft og því fer loftið á hreyfingu þegar það hitnar og kólnar og m.a. þess vegna  verðu vindur til.  Við gerðum líka nokkrar aðrar tilraunir með vindinn t.d. bjuggum við til "tjald" úr A4 blaði og settum á borð og blésum inn í það og þá féll tjaldið án þess að nokkur kæmi við það.   Þetta var mjög skemmtilegur tími og allir mjög áhugasamir og ótrúlegt hvað krakkarnir vita mikið þegar þeir sameina vitneskju sína.