Tilbreytingarríkt skólastarf
18.02.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Það er sjaldan hægt að tala um að lífið gangi sinn vanagang í skólanum, því stöðugt er eitthvað sem brýtur upp hversdagsleikann. Rósaballið sem var síðasta föstudag er t.d. einn af stærstu viðburðum skólaársins í félagslífinu, það var vel sótt og tókst vel. Maskadagurinn er alltaf skemmtilegur líka og gaman að sjá hve margir unglingar komu í búningum og lífguðu upp á skólabraginn með því. Svo er náttfatapartýið í félagsmiðstöðinni ómissandi um kvöldið.
Námið er líka tilbreytingaríkt, ekki síst núna þegar við erum að prófa okkur áfram með nýju spjaldtölvurnar og kynnast öllum þeim möguleikum sem þær bjóða upp á. Þær gefa t.d. nemendum betri möguleika á að fylgjast með náminu þótt þeir séu heima eða í leyfi, því allir geta séð í Showbie hvort einhver ný verkefni hafa komið þar inn og oftast geta menn unnið þau heima. Þess vegna er krafan enn skýlausari nú en áður, að allir skili öllum verkefnum - hvar sem þeir eru staddir. Ef einhverjar sérstakar ástæður eru fyrir því að menn telji sig ekki eiga að skila tilteknu verkefni er hægt að senda kennurum skilaboð um það gegnum Showbie.
Við erum þó ekki búin að gera neina byltingu, gamlar og góðar aðferðir eru líka notaðar. Núna er t.d. verið að sýna kvikmyndina Duggholufólkið í íslensku. Myndin gerist á Vestfjörðum og segir frá gamalli vestfirskri draugasögu. Síðan verður unnið verkefni um myndina að lokinni sýningu.
Það er við hæfi að fjalla um draugasögu núna, því fyrir dyrum stendur árshátíðarundirbúningurinn og að þessu sinni er yfirskrift hennar Galdrar og draugar. Það voru nemendur skólans sem völdu þessa yfirskrift.








