Þrettándinn
06.01.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Þann 6. janúar er þrettándinn en þá er síðasti dagur jóla. Síðasti jólasveinninn fer þá aftur til fjalla eins og eftirfarandi vísubrot eftir Jóhannes úr Kötlum ber vott um:
Svo tíndust þeir í burtu,
- það tók þá frost og snjór.
Á Þrettándanum síðasti
sveinstaulinn fór.
Margt skemmtilegt er um að vera á þrettándanum. Þann dag eiga kýr að geta talað mannamál og álfar fara á kreik. Fólk kveður gjarnan jólin með því að safnast saman við þrettándabrennur, skýtur upp flugeldum og syngur. Álfar, huldufólk og jafnvel tröll sjást á sveimi. Einnig má stundum rekast á einn og einn jólasvein sem ekki hefur skilað sér aftur upp til fjalla. (Heimild: Námsgagnastofnun ).