Þorrablót 10. bekkjar
19.01.2017 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Þorrablót 10. bekkjar verður haldið föstudaginn 20. janúar kl. 20:00 í sal skólans. Skemmtiatriði verða í höndum foreldra og starfsmanna skólans, sem hafa unnið að undirbúningi síðustu vikur. Einnig hafa nemendur æft gömlu dansana af kappi, þannig að búast má við frábæru kvöldi.
Gestir koma sjálfir með sinn mat í trogum ásamt áhöldum, en 10. bekkur selur drykki á staðnum. Húsið opnar kl. 19:30.








