Þorrablót 10. bekkjar 2013

23.01.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

 


 


Þá  er komið að hinu margrómaða þorrablóti 10.bekkjar Grunnskólans á Ísafirði. Nú þegar hafa rúmlega
170 manns skráð sig til þátttöku og stefnir í hörku blót hjá okkur að vanda.



Blótið fer fram föstudaginn 25. 01. og hefst borðhald  kl. 20:00 í hátíðasal skólans.                         


Húsið verður opnað kl. 19:30.                                                    


 Eins og á mörgumgóðum blótum mætir fólk með sinn þorramat fyrir sig og sína. Einnig þarf fólk að hafa með sér diska og
hnífapör og servéttur ef fólk vill. Gos verður selt á staðnum til fjáröflunar fyrir 10.bekk og munu nokkrir  9. bekkingar
standa sjoppuvaktina.  Glös fáum við  lánuð úr skólaeldhúsinu.





Hlökkum til að sjá ykkur,




kv. Guðríður og Kristín.