Þemadögum lokið

16.11.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Nú er þemadögum undir yfirskriftinni Saman í liði - allir á iði,  lokið. Í lok dagsins söfnuðust allir nemendur og starfsfólk skólans saman í nýja anddyrinu og sungu nokkur lög, þar á meðal nýjan skólasöng. Einnig var Stóra upplestrarkeppnin sett formlega í tilefni dags íslenskrar tungu.


Í lok dagsins var svo öllum boðið upp á súpu og brauð, sem nemendur og starfsfólk matreiddi.


Sjá má fjölda mynda og myndbönd frá þemadögunum hér vinstra megin á síðunni, sem fjölmiðlahópurinn sá um.