Þemadagar
13.11.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Dagana 15. og 16. nóvember verða þemadagar í skólanum undir yfirskriftinni Saman í liði - allir á iði. Nemendum skólans verður skipt í 29 hópa, þvert á árganga og verða því 1 - 2 sjöttu bekkingar í hverjum hópi. Þessa daga verður skóladagurinn til kl. 13:05 og þurfa nemendur einungis að hafa lítinn bakpoka með nesti meðferðis þessa daga.








