Textílmennt

01.09.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Grunnskólinn á Ísafirði


Skólaárið 2012-2013


 


 


 


Kennsluáætlun í textilmennt.


 


Kennari:                      Fríða Rúnarsdóttir


Kennslutími:               Tvær kennslustundir tvisvar sinnum í viku í ca 9 vikur.


Nemendahópur:          7.  bekkur


 


Yfirmarkmið:


-                     Nemandinn


-                     Þekki og geti beitt helstu áhöldum og vélum greinarinnar.


-                     geti nýtt sér aðferðir og vinnulag textíla.


-                     Geri sér grein fyrir mikilvægi vandaðra vinnubragða og góðrar umgengni.


 


Námsgögn.:     Saumavélar, efni,  blöð og bækur,sem tilheyra greininni.


 


Kennslufræðileg markmið:


-           Nemendur búa til myndaramma úr country-filti og nota ýmiss útsaumsspor til skreytingar. Notað er perlugarn í útsauminn.


-          Vélsaumur: nemendur eiga að geta bjargað sér alveg sjálfir á saumavélar, séð um        


            að þræða undir – og yfirtvinna, spólað og stillt vélina.


-          Nemendur sauma náttbuxur eða stuttbuxur.


-                     Nemendur vinna í tölvu og gera ýmsar útgáfur af nafninu sínu og prenta úr þá


gerð sem þeir eru ánægðastir með. Síðan klippa þeir út stafina og nota blaðið sem stensilform og stensla nafnið sitt á hvítan stuttermabol sem þeir fá í hendur.


-                     Nokkuð frjáls verkefni eftir það.


-                      


Skipulag:


 


Nemendum í textilmennt er skipt í fjóra hópa. Kennt er í handavinnustofu grunnskólans, tvær stundir samfellt, tvisvar sinnum í viku.


 


Námsmat:


 


Í hverjum tíma fer fram símat á vinnusemi, vandvirkni, framkomu og hegðun nemenda. Í lok annar er síðan gefin heildareinkunn.


 


Námsmat:


Einkunnagjöf á skalanum 0-10