Tæknimennt
31.08.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Kennsluáætlun í tæknimennt veturinn 2012 - 2013
7. bekkur
Kennslutími: Nemendur mæta í hringekju tvisvar í viku, tvo tíma í einu í níu vikur.
Samtals 36 tímar.
Kennari: Elfar Reynisson
Námsmat: byggist á símati sem tengist eftir farandi þáttum.
- 70% einkunnar tengist virðingu, samhug og menntun.
- 30% einkunnarinnar tengist hlutnum sem smíðaður er, útlit og frágangur.
Virðing samhugur og menntun taka á því hvernig nemendur:
- haga sér í tímum
- ganga um stofuna, hvernig þeir skila henni af sér í lok tíma
- ganga um verkfæri í stofunni, notkun og frágangur í lok tíma
- koma fram við samnemendur
- sýna áhuga og viðhorf til vinnunnar sem fram fer í tímum
Verkefni vetrarins er að smíða skáp úr furu með tveimur hillum og tveimur hurðum.
Byrjað er á því að ákveða stærðir ( hæð, dýpt og þykkt) á hliðum, hurðum, hillum og yfir- og undirstykkjum.
Kennari efnar niður fyrir nemendur úr 1“ * 6“ furuborði. Nemendur þykktarhefla efnið með aðstoð kennara og að því loknu byrja nemendur
Vinnsluferli efnis:
- pússa yfirboð efnisins.
- merkja fyrir dílum og bora
- fræsa úr hliðum og yfir- undirstykkjum fyrir baki sem er úr 4 mm krossvið
- fræsa skrautrendur framhliðar skápahurða
- fræsa skrautrendur á undir- og yfirstykki
- fínpússa yfirborð efnis áður en skápurinn er límdyr saman
- saga niður dílastangir í réttar lengdir
- líma dílastangir í enda á hliðum og hillum
- líma saman skáp og þvinga meðan límið er mjúkt
- skrúfa lamir á hurðir og skáp
- hanna höldur og festa á skáphurðir
- lakka skáp ef tími vinnst til








