Sýning og samvinna
02.05.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Á sumardaginn fyrsta átti 6. bekkur verkefni á sýningu á teiknimyndasögum í Edinborgarhúsinu. Þar sem verkin voru aðeins uppi þennan eina dag ætlum við að setja þau upp í skólanum í næstu viku svo fleiri fái að njóta þeirra.
Í þessari viku höfum við verðið í samvinnu með 9. bekk að skoða aðgengi að ýmsum þjónustustöðum í bænum. Við vinnum þetta verkefni áfram í næstu viku og verða niðurstöðurnar kynntar á fundi MND félagsins næsta föstudag.








