Sýning í stjórnsýsluhúsinu

23.05.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Sýning á verkefninu um aðgengi fatlaðra að stofnunum og þjónustufyrirtækjum í Ísafjarðarbæ sem 6. og 9. bekkur unnu hefur verið sett upp á annarri hæð stjórnsýsluhússins og verður þar út mánuðinn. Á fundi MND félagsins fyrir hálfum mánuði kynntu tvær stúlkur úr 9. bekk niðurstöðurnar og fengu krakkarnir mikið lof fyrir verkið og útfærslu á því.   Það er vel þess virði að koma við í stjórnsýsluhúsinu og sjá hversu fjölbreytt skólavinnan getur verið.