Sveitaferð

24.05.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Sveitaferðin gekk ljómandi vel.  Við vorum vel vökvuð í rigningu allan tímann.  Þegar við komum að Hólum í Dýrafirði tóku þau hjónin Ásta og Friðbert vel á móti okkur ásamt nokkrum hundum.  Við nýttum góðan tíma til að skoða kindurnar, lömbin og umhverfið.  Svo var kaffi í skemmunni þar sem boðið var upp á muffins og djús og sumir gæddu sér einnig á eigin nesti.  Eftir það sungum við fyrir þau Minkinn í hænsnakofanum og frumsamið lag um heimsóknina (við tókum það upp á myndband og erum að kanna hvernig við getum komið því á síðuna til að þið getið séð).  Á meðan við vorum í kaffi fæddist eitt lamb svo aftur var haldið í fjósið að skoða nýja lambið og beðið hvort það næsta ætlaði að láta sjá sig en það lét bíða eftir sér þar til við vorum farin.  Ásta sýndi okkur einnig veðurathugunarstöðina sem þau sjá um og hvernig úrkoman er mæld.  Við þökkum fólkinu að Hólum kærlega fyrir að taka við okkur.


Á leiðinni heim stoppuðum við aðeins í fjörunni að Holti og mörkuðum spor okkar þar í sandinn.  Það stopp var þó stutt því allir voru orðnir vel blautir og ákveðið var að halda tilbaka í skólann og grilla þar í skjóli fyrir rigningunni.  Þegar komið var í skólann fóru krakkarnir inn í stofu að horfa á myndband meðan beðið var eftir pylsunum og þær borðaðar.  Í lokin var svo tekin róleg lestrarstund.


Það er komið nýtt albúm í myndasafnið okkar með myndum úr sveitaferðinni.