Sveitaferð

23.05.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í dag fór 3. bekkur í sveitaferð að Hólum í Dýrafirði.  Þar búa hjónin Friðbert og Ásta og þau buðu krökkunum að koma í heimsókn og skoða sauðfjárbú sitt.  Við lögðum af stað rúmlega átta í morgun og ókum sem leið lá í Dýrafjörðinn.  Þegar við rendum í hlaðið á Hólum tóku Ásta og Berti á móti okkur ásamt hundunum sínum.  Hundarnir heilluðu marga, þeir voru mjög gæfir,  sérstaklega tíkin sem var mjög glöð að fá svona marga krakka að leika við og hún fór margar ferðir að  sækja bolta sem krakkarnir hentu.   Við fengum að skoða fjárhúsin og allir sem vildu fengu að halda á lambi og gefa kindum heytuggu, síðan bauð Ásta okkur upp á kökur og djús.  Þegar við voru búin að drekka kom hringing úr fjárhúsinu, það var kind að bera.  Við fórum því aftur í fjárhúsið og sáum kindina bera, það er magnað augnablik þegar nýtt lamb kemur í heiminn og gaman að sjá það fóta sig fyrstu mínútur lífsins, hvernig ærin karar lambið og það reynir að standa upp.   Við fengum líka að skoða veðurathugunarstöðina á Hólum.  Á heimleiðinni stoppuðum við í Holtsfjöru og borðuðum nestið okkar þar.  Krökkunum fannst mjög gaman að leika sér í fjörunni, þau fundu fullt af skeljum, teiknuðu í sandinn, byggðu sandkastala , stukku af bryggjunni, grófu sig í sandinn og að sjálfsögðu blotnuðu nokkrir þegar þeir fóru að vaða og fóru „óvart“ of langt út.  Það voru sælir og ánægðir krakkar sem komu heim í skóla eftir velheppnaða ferð.  Kæru Friðbert og Ásta takk fyrir okkur.