Sundkennsla í 8. bekk

09.03.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Grunnskólinn á Ísafirði


 


Skólasund 8. bekkur


Veturinn 2014 - 2015


 


 


Kennari:         Guðný Stefanía Stefánsdóttir


 


Kennslutími: 2x40 mín. á viku


 


Námsmat:       Einkunnir eru gefnar að vori. Próf gildir 50 %, ástundun, virkni og mæting 50%


 


Markmið:       Að nemandi viðhaldi sundfærni sinni með tilliti til breyttrar líkamsbyggingar.


                        Að nemandi þjálfist í leikjum sem efla félagslega samvinnu.


                        Að nemandi átti sig á því hvaða íþrótt eða líkams- og heilsurækt henti sér best út frá getu og áhuga.


                        Að nemandi þjálfist í að geta synt ákveðna vegalengd viðstöðulaust með frjálsum aðferðum.


 


Áhersluþættir: Bringusund, skriðsund, baksund, flugsund,  kafsund, björgunarsund, þolsund, tímataka, marvaði og stöðvaþjálfun


 


 


Kennsluáætlun 8. bekkur


 


































































































































































25. – 29. ágúst.



Upphitun -  bringusund, skriðsund, skólabaksund, baksund, þolsund/boltaleikir



1. – 5. sept.



Upphitun – undirbúningsæfingar fyrir bringusund, synda fótatök m/flá og hendur teygðar fram, bringusundstaktur, bringusund. Undirbúningsæfingar  f. skriðsund. Þolsund 400-500 m



8. – 12. sept.



Upphitun – undirbúningæfingar fyrir bringusund, synda bara fótatök með/án fláar, prófa að synda bara armtök, bringusundstaktur, bringusund.



15. – 19. sept.



Upphitun - undirbúningsæfingar fyrir skriðsund, synda bara fótatök m/flá og hendur teygðar fram. Synda með flá í vinstri hönd og hægri. Synda armtök með kút á milli fóta, skriðsund, þolsund.



22. – 26. sept.



---------------------- ´´  --------------------------



29. sept. – 3. okt.



Upphitun – undirbúningur fyrir baksund, synda bara fótatök með/án fláar með hendur teygðar aftur/ með hendur niður með síðum og velta öxlum/ synda hendur og fætur/ synda bara hendur með flá eða kút á milli fóta, baksund, leikir.



6. - 10. okt.



Upphitun – undirbúningsæfingar f. skólabaksund, synda bara fótatök með/án fláar, fótatök, faðma flá, hendur teygðar aftur eða niður með síðum. Fótatök og láta flá liggja yfir hnjám, taktur, skólabaksund, leikir.



13. – 17. okt.



----------------------- ´´ ----------------------------



20. – 24. okt.



Upphitun – undirbúningsæfingar fyrir flugsund, fótatök með/án fláar/ hendur fram og með síðum. Æfa höfrungahopp í gegnum gjörð, nota froskalappir og æfa hendur.



27. – 31. okt.



----------------------- ´´ ------------------------------



3. – 7. nóv.



Upphitun – stöðvaþjálfun: fótatök í bringusundi, skriðsundi, skólabaksundi og baksundi. Kafsund, spyrna frá bakka, stunga af palli, æfingar með gjörð og froskalappir, tímataka.



10. – 14. nóv.



Upphitun – undirbúningsæfingar fyrir bringusund og skólabaksund. Synda bara fætur, synda með flá, boðsund/þolsund 500-600 m.



17. – 21. nóv.



------------------------ ´´ -------------------------------



24. – 28. des.



Upphitun – undirbúningsæfingar fyrir baksund og skriðsund. Fótatök með flá og hendur teygðar fram/ taktur/ hendur niður með síðum og velta öxlum/ synda bara hendur og bara öðrum megin. Synda skriðsund og baksund.



1. – 6. des.



8.stigs próf



10. – 14. des.



8.stigs próf


 



15. – 19. des



8. stigs próf



6. – 9. jan.



Upphitun – undirbúningsæfingar fyrir bringusund/ fótatök/ armtök/ björgunarsund/ stunga af palli/ þolsund 500 – 600 m.



12. – 16. jan.



Upphitun – undirbúningsæfingar fyrir skólabaksund, fótatök og faðma flá/ flá ofan á hnjám/ fótatök og armtök/ taktur/ kafsund taktur.



19. – 23. jan.



Upphitun – undirbúningsæfingar fyrir skriðsund/ fótatök og armtök / bara hendur og bara fætur / öðrum megin/ eltisund og þolsund.



26. – 30. jan



Upphitun – undirbúningsæfingar fyrir flugsund, fótatök með/án fláar/ hendur fram og með síðum. Æfa höfrungahopp í gegnum gjörð, nota froskalappir og æfa hendur.



2. - 6. feb.



 Upphitun – undirbúningsæfingar fyrir baksund/ fótatök og armtök/ taktur/ velta öxlum/ baksund með/án fláar.  Boðsund og leikir.



9. – 13. feb.



Upphitun – stöðvarþjálfun, stöðvar sem eiga að æfa bringusund, skriðsund, baksund og skólabaksund, kafsund, marvaða, stungu og spyrnu frá bakka, tímataka.



16. – 20. feb.



Upphitun – kafsund, björgunarsund, marvaði, þolsund 500 – 600 m. Taktur í kafsundi og björgunarsundi.



23. – 27. feb.



------------------------ ´´ --------------------------------



2. – 6. mars



Upphitun – undirbúningsæfingar fyrir bringusund, fótatök með hendur teygðar fram og með flá/ armtök með flá á milli fóta eða kút/ taktur og rennsli,  bringusund og boðsund.



9. – 13. mars



----------------------------- ´´ ----------------------------



16. – 20. mars



Upphitun – undirbúningsæfingar fyrir flugsund, fótatök með/án fláar/ hendur fram og með síðum. Æfa höfrungahopp í gegnum gjörð, nota froskalappir og æfa hendur.



23. – 27. mars



Upphitun – undirbúningsæfingar fyrir skriðsund/ fótatök og armtök / bara hendur og bara fætur / öðrum megin/ eltisund og þolsund.



7. – 10. apríl



-------------------------- ´´ --------------------------------



13. – 17. apríl



Undirbúningur fyrir próf



20. – 24. apríl



9. stig próf



27.apr – 1. maí



9. stig próf



4. - 8. maí



Björgunarsund.



11. – 15. maí



Björgun



18. - 22. maí



Frjálst, próf ef einhver eru eftir



26. – 29. maí



Frjálst, próf ef einhver eru eftir



  1. – 3. júní