Sumarlestur
05.06.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Síðasti skóladagurinn á þessu skólaári var í gær. Við notuðum hann til að ganga frá skólastofunni, horfðum á bíómynd, borðuðum ís og fórum í gönguferð sem endaði á heimsókn á bókasafnið á Ísafirði. Þar tók Edda á móti okkur og sagði okkur aðeins frá bókasafninu og kynnti síðan sumarleik bókasafnisins fyrir okkur. Krakkarnir fá lánaðar bækur á bókasafninu, lesa þær og þegar bókunum er skilað skrá krakkarnir þær á miða sem fer í happdrættispott. Í lok sumar eru vinningshafar dregnir úr pottinum. Allir sem taka þátt fá smá glaðning í lok sumars. Stór hluti af bekknum skráði sig í þennan leik gær enda ætla allir í 4. bekk að vera duglegir að lesa í sumar.








