Stóra upplestrarkeppnin

12.02.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Þá fer að líða að lokum stóru upplestrarkeppninnar. Fimmtudaginn 20. febrúar verða 10 nemendur valdir úr hvorum bekk til áframhaldandi þátttöku. Viku síðar eða fimmtudaginn 27. febrúar verða svo 5 nemendur úr hvorum bekk valdir til skólakeppninnar, sem fram fer föstudaginn 7. mars. Ekki er enn komið á hreint hversu margir komast áfram þaðan.


 


Lokahátíð stóru upplestrarkeppninnar fer svo fram í Hömrum föstudaginn 14. mars n.k. Nú er um að gera að æfa sig af kappi til að fá sem mest út úr þessu.