Stóra Upplestrarkeppnin, 3. umferð

16.03.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í dag fór fram 3. umferð í Stóru Upplestrarkeppninni í sal grunnskólans. Þrettán krakkar úr 7. bekk tóku þátt og stóðu þeir sig allir prýðilega. Voru sex valdir til áframhaldandi þátttöku en það voru þau Hákon Ernir, Elías Ari, Sonia Ewlina, Ólöf Dagmar, Eva Rún og Linda Marín. Lokakeppnin verður svo haldin í Hömrum fimmtudaginn 22. mars. Á meðan dómararnir gerðu upp hug sinn sýndu Andri Fannar, Hekla, Unnur Eyrún og Sævar Hrafn myndir frá skólabúðunum á Reykjum. Nemendur í 6. bekk voru í salnum og var ekki hægt að sjá annað en að þeir hafi skemmt sér vel við þær.