Stafsetningatexti fyrir próf 14.maí

11.05.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir


Stafsetning-maí 2012


 


Dagurinn í gær var erfiður. Hann byrjaði á því að öll fjölskyldan vaknaði eldsnemma því mamma var að fara til Frakklands.


„Mikið hlakka ég til að sjá París”, sagði hún.„ Ég veit líka að Frakkar eiga falleg listasöfn”.


Pabbi ók mömmu út á flugvöll en ég átti að sjá um systkini mín, Brynju og Pál á meðan.


Ég þurfti að vekja þau, gefa þeim mat og fara með þau í leikskólann. Þau voru óþæg og syfjuð. Fyrir vikið fórum við öll svöng að heiman. Það lyftist þó á mér brúnin þegar ég minntist þess að um morguninn hafði mamma sett einn rauðan seðil í vasa minn.


Mötuneytið í skólanum mundi bjarga lífi mínu. Á leiðinni í leikskólann rigndi eins og hellt væri úr fötu og bílarnir skvettu yfir okkur. „Mikið hlakka ég til þegar páskafríið hefst”, hugsaði ég. Rétt í því stansaði einn bílanna við gangstéttarbrúnina. Bílstjórinn þurrkaði móðuna af rúðunni. Þarna var Ingunn frænka mín komin. Við drifum okkur upp í hlýjan bílinn.