Stærðfræðiverkefni

26.03.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Þessa vikuna fer fram Tölfræðiverkefni í stærðfræði í 9. bekk. Þetta er matsverkefnið í tölfræðinni sem kemur staðinn fyrir próf og vinna nemendur það í  þriggja manna hópum. Hver hópur fékk úthlutað efni, t.d áhugamál, íþróttir o.fl. Nemendur sömdu 4-6 spurningar  um efnið og fór hver hópur í einn árgang í skólanum og spurðu spurninga. Síðan setja þau niðurstöðurnar upp í ýmis konar myndrit.