Stærðfræðifjör

12.10.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Á þriðjudaginn fórum við út í ýmis mælingarverkefni.  Við unnum saman í hópum og var mælt með hænuskrefum, mælistikum og sippuböndum.  Inni voru einnig áframhaldandi mælingar með kubbum, mælistikum og fleiru.  Við tókum örfáar myndir úti (myndavélin bilaði) en höfum ekki komið þeim inn á vefinn.  Við látum vita þegar myndirnar koma inn á vefinn.