Spurningakeppni

12.03.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í morgun var kennslan brotin aðeins upp með skemmtilegri spurningakeppni. Við fórum í stofu 5. bekkjar líkt og í síðustu viku og fengum iPadana lánaða til að svara ýmsum spurningum varðandi stærðfræði, náttúrufræði og ýmislegt annað í gegnum forritið Kahoot. Keppnisskapið var til staðar, en best var þó að allir höfðu gaman að. Nokkrar myndir frá morgninum eru komnar inn á myndasíðuna okkar.