Spilakvöld

16.10.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir


Fimmtudagskvöldið 16. október verður haldið spilakvöld hjá nemendum 8. bekkjar og foreldrum þeirra. Skemmtunin fer fram í bekkjarstofum 8. bekkjar og hefst kl. 20:00. Allir eru hvattir til að taka með sér skemmtileg spil að heiman og eitthvað gott að nasla - og góða skapið.


Þetta er fyrsti atburðurinn sem fulltrúar foreldra standa fyrir í vetur og vonandi skemmta allir sér vel saman.