Spennandi verkefni

13.09.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Við erum að vinna skemmtilegt verkefni í íslensku þar sem hver hópur er að búa til fjölskyldu. Þá þarf hópurinn að ákveða hvað fólkið á að heita, aldur, háralitur, útlit og áhugamál. Síðan eru þau búin að búa til dúkkulísur og teikna mynd af fjölslyldunni á ferðalagi (ljósmynd). Hver fjölskylda fær úthlutaða lóð í götunni sem þau ráðstafa húsi og garði. Að lokum semja þau stutt leikrit sem sýnir líf úr sinni fjölskyldu. Þetta er mjög spennandi og skín áhugi og gleði úr hverju andliti. Því í svona verkefni geta allir tekið þátt á sínum forsendum :)