Sparidagur

29.11.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Sú skemmtilega hefð hefur skapast á unglingastigi skólans, að allir komi spariklæddir í skólann á 1. des. - eða þann dag sem 1. des. fagnaðurinn er haldinn. Í dag var þessi hefð í heiðri höfð og gaman að sjá hve þátttakan var almenn og allir sparilegir og fínir. Við notuðum tækifærið og brugðum okkur upp á svið í salnum og tókum nokkrar hópmyndir af árganginum. Við fengum reyndar fagmanneskju til að aðstoða okkur  því við búum svo vel að geta leitað til Árnýjar Herbertsdóttur ljósmyndara og hún sá um verkið. Síðan verður ein af þessum myndum valin til að prýða forsíðuna á dagatalinu sem árgangurinn er að útbúa. 


Í kvöld er svo 1. des. hátíðin sem hefst með sýningu á Söngvaseiði og lýkur með balli. Foreldrar og velunnarar eru hvattir til að koma. Allur aðgangseyrir rennur í ferðasjóð 10. bekkjar.


Góða skemmtun!