Sólarkaffi með 8. bekk

30.01.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Á miðvikudaginn 28. janúar buðu vinir okkar í 8. bekk okkur í sólarkaffi.  Þó að sólin hafi falið sig á bak við ský þennan dag voru allir með sól í hjarta og pönnukökurnar runnu ljúf niður.  Eftir sólarkaffið var tekið í spil og skemmtu allir sér mjög vel. Takk kærlega fyrir okkur kæri vinabekkur.