Sólarkaffi hjá 1. bekk
29.01.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Sólarkaffi hjá 1. bekk
Það er gamall og góður siður hér á Ísafirði að halda upp á sólin er aftur farin að skína á bæinn okkar eftir skammdegið og þá er oftast boðið upp á pönnukökur. Við í 1. bekk fengum góða sendingu eftir hádegi á mánudaginn þegar nokkrir foreldrar sendu okkur upprúllaðar pönnsur. Krakkarnir voru ný komin inn úr útivist með rjóðar kinnar og gerðu veitingunum góð skil. Ekki spillit fyrir að bekkirnir fengu tækifæri til að hittast og hafa gaman saman. Kæru foreldrar takk fyrir okkur








