Sólarkaffi

20.01.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Miðvikudaginn 25. janúar er sólardagur okkar Ísfirðinga og langar okkur að halda upp á daginn með sólarkaffi. Við auglýsum því eftir 3-4 foreldrum í hvorum bekk til að baka pönnukökur (upprúllaðar) og koma þeim til okkar á miðvikudagsmorgun fyrir morgunnestið kl. 9:40.


Þeir sem bjóða sig fram eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við okkur sem fyrst.